30.12.02
Gleðilega jóla rest
Hafði það mjög gott um jólin þó að ég gataði allt sem gatað varð á FM Akureyri. Enda verð ég sennilega seint talinn holdgerfingur þess sem þar var leikið.
Ja svei mér þá ef jaxlinn var ekki sannspár um fráfarandi borgarstjóra þeirra fyrir sunnan. Eins og einhver sagði um tilkynningu borgarfulltrúa framsóknarmanna og vinstri og grænna í Reykjavík að þeir hefðu rekið Ingibjörgu, vel má vera að eitthvað sé hæft í því annars er það ljóst að þeim brást bogalistin með braki og brestum gærdagsins
Hafi menn séð Stellu í Framboði, hljóta menn að spyrja; hvar á Ingibjörg sumarbústað? Þórólfur vann einu sinni hjá Olís.. Annars er þetta nokkuð hnyttið að kenna öðrum um það að geta ekki staðið við loforð sitt en minnast ekki á hitt loforðið sem greinilega stendur ekki til að verði efnt. Ákveðið er að fara í framboð og breyta þar með útaf því sem áður var sagt og láta viðbrögðin fara í taugarnar á sér og kenna samstarfsmönnum um að hún geti ekki setið áfram sem borgarstjóri. Hún gat alltaf hætt við framboð og haldið þannig áfram sem borgarstjóri. Nei þá var það orðinn sjálfsagður réttur hennar að setjast á lista sem væri borinn fram til Alþingiskosninga þó að hún segði að hún væri ekki leið í þingframboð. Er nema von að þetta sé ruglingsleg efnisgrein þegar Ingibjörg hring snýst svona.
Nóg um leiðindin, Kristján Þór stendur sig vel.
Annars ætla ég heim og halda hátíðlega upp á árvissan þátt í lífi mínu, áramótin. Undirbúningur hátíðarinnar hefst strax í kvöld...
Ég spyr bara: hvar er áramótaspá Baggalúts???
gleðilegt nýtt ár með þökk fyrir viðkynninguna sem var með ánægjulegasta móti.
23.12.02
Þorláksmessu vetri á þjóðlega, þessa jólakveðju sendi
og á aðra íslenska bendi, Að skötu áti loknu, náttúrulega
Gleðileg jól
19.12.02
Og sjá
Hurðaskellir kom til byggða í gær...
18.12.02
Það styttist í jólin
Og í tilefni dagsins í dag þá vil ég leyfa mér að koma hérna fyrir kveðskap sem flestir ef ekki allir þekkja, þó hann sé ekki eftir mig, vísurnar eru eftir mér þekktari mann hann Jóhannes úr Kötlum. Hurðaskellir er sagður af sumum vera á stjái allt árið, skellandi hurðum í tíma og ótíma.
Sjöundi var Hurðaskellir, sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu fá sér vænan dúr.
Hann var ekki sérlega hnugginn yfir því,
þó að harkalega marraði hjörunum í.
Fréttir af samkeppnisaðila Eimskips sem breytir reyndar ekki miklu fyrir Eimskip svona fyrst í stað. Reyndar er aðalega verið að ræða um formbreytingu á eignar haldi en .Þetta vakti athygli manna í Færeyjum, sem er ekki skrýtið.
11.12.02
Hátíð er eyjunum í
Því nú fá menn að bruna eftir jarðgöngum milli Straumeyjar og Voga Hálfu ári á undan áætlun. Til hamingju Færeyingar. Þetta er frábært.
10.12.02
Er Viðskiptablaðið þess virði?
Ég meina mér þætti nær að fjalla um Morgunblaðið á þessum nótum. En það er bara ég.
Vá.
Guð minn góður, hvað það er lítið í gangi hjá mér. Ég bara veit ekki, en svona fyrsta kastið þá fór ég að hugleiða það hvort að engin próf merki það sama og ekkert jólaskap. En annað sem engin próf merkja örugglega er minna blaður. Það er augljóst hvort tveggja á samanburði magns og gæða blaðurs míns við blaður annarra blaðrara. Að ég stend meðal-blaðrara langt að baki. Ekki er ég í prófum en nokkrir blaðrarar kjósa að blaðra um prófin og undirbúning sinn fyrir áðurnefnd próf.
Ramadan er lokið en mér er ekki öllum lokið.
Varðarmenn grimmir
"Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, lýsir undrun sinni á þeim undirtektum sem fyrirspurn varaþingmanns Samfylkingarinnar, Örlygs Hnefils Jónssonar, hefur fengið í fjölmiðlum um 19 km styttingu hringvegarins. Vörður minnir á mun raunhæfari hugmyndir Halldórs Blöndals sem birtust í grein hans á Íslendingi, 10. febrúar 2002, um Norðurveg, sem styttir leiðina milli Akureyrar og Reykjavíkur um heila 85 km. Kostnaður af þeirri styttingu yrði um það bil 8.1 milljarður, þar af eru þegar inn á vegaáætlun 2,7 milljarðar vegna 30 km styttingu um Kaldadal.
Ef gert er ráð fyrir álíka hlutfallslegum sparnaði af þeirri framkvæmd, myndu um 1900 milljónir sparast á ári, á móti 400 milljóna sparnaði fyrir 19 km styttingu. Þessar framkvæmdir myndu því borga sig upp á innan við 5 árum. Vörður lýsir yfir fullum stuðningi við tillögur Halldórs og bendir Örlygi á að kynna sér þær og styðja sé honum stytting hringvegarins kappsmál.
Grein Halldórs má finna hér
Stjórn Varðar, f.u.s. á Akureyri", Svo mörg voru þau orð.
Þetta er gott framtak hjá Laurent, Guðmundi, Víði, Stefáni, Atla Þór, ( Atla Hafþórs, Bergi og Jónu, þessi þrjú síðast nefndu eru í varastjórn)
Ef menn ætla sér að stytta vegalengdina milli Akureyrar og Reykjavíkur er betra að gera það almennilega heldur en að vera með einhverjar smáskammtalækningar sem skila litlu sem engu.
5.12.02
Ástþór lætur sér vistina forðum ekki að kenningu verða en heldur uppteknum hætti og nú verða fleiri og fleiri fyrir því óláni að fá sendingu frá Ástþóri Magnússyni eins og fram kom í fréttum sjónvarpsins í gær. Ég vil tæpast vita hvað hann lætur sér detta næst í hug.
Annars þá gengu hátíðahöldin fremur rólega fyrir sig um helgina hvað sem Baggalútur kann að hafa sagt. Ég veit ekki hvort blaðurþurrð mín hér standi fyrir einhver af mínum helstu lyndiseinkennum, kannski Eva gæti svarað því?
En það er í það minnsta nóg í gangi þessa dagana SUS mótmælti í gær. Stjáni Blái er bara helvíti góður bæjarstjóri. Hann sker ekki niður hann er að hemja útgjalda aukninguna. Ef útgjaldaaukningin og svo útgjöldin verða ekki hamin þarf að skera niður þjónustu síðar. Á fundi í gær sem haldinn var með fulltrúum Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í fastanefndum Akureyrarbæjar kom í ljós hverjir höfðu skoðanir og hugmyndir. Það sem kom mér mest á óvart var að frá því að svipaður fundur var haldinn 20. nóvember hafði andagift framsóknarmannanna ekkert aukist. Ekkert. Það er ógnvænlegt. En hinsvegar var meira lífsmark með þeim í gær en á fyrri fundinum.
1.12.02
Íslendingar
Til hamingju með daginn
1918-2002
áttatíu og fjögra ára fullveldi
Fullveldið lifi, Ísland lifi
Íslandi allt.
28.11.02
Er þetta ábyrg fyrirmynd yngstu kynslóðarinnar?
É g ætla rétt að vona að svo sé ekki.
Valdi þú færð ekki greitt fyrir að segja nemendum þínum frá því hvað þú og vinir þínir eru fyndnir undir áhrifum áfengis. Það er ekki fræðsla, það er hræðsla, þá muntu hræða blessuð börnin.
Ef það sama gilti um áfengi og gildir nú um tóbak sætir þú nú á Litla-Hrauni. Sennilega væri það metið til refsi þyngingar hve mikil áhrif þú getur, starfs þíns vegna, mögulega haft á óharðnaða og saklausra hugi barna sem þú hefur lífsviðurværi þitt af að uppfræða.
Vímuvarnir
a la
27.11.02
Ef ég blaðra ekki meir...
...þá veit ég um letidýr sem ábyggilega eftir að blaðra óhemju mikið í framtíð sem fortíð. Sama hvort ég blaðri eða ekki, hinsvegar finnst mér líklegt að það sem letidýrið blaðrar um virki óskiljanlegt með öllu fyrir flesta.
26.11.02
Aukið frelsi í viðskiptum
Nú hefur það komið á daginn að ríkisstjórnin vill útvíkka fríverslunarsamning við Færeyinga frá árinu 1992. Satt best að segja vill Ríkisstjórnin gera það rétta í málinu. Því loksins loksins er stefnt að því að vöru- og þjónustuviðskipti milli ríkjanna verði alfarið gefin frjáls. Einnig verði athugaður möguleiki á að íbúar og fyrirtæki landanna njóti gagnkvæmra réttinda í landi hins samningsaðilans. Sem er Sjálfsagt mál að mínu mati.
Aukist frelsið á þessu sviði mun samkeppnisstaða Íslendinga batna og útflutnings kvóti lambakjöts verður ekki lengur bundinn við 700 tonna. Eins og kunnugt er er íslenskt lambakjöt vinsæl neysluvara í Færeyjum. Sóknarfæri fyrir útflytjendur eru töluverð á Færeyjamarkaði t.d. hvað varðar mjólkurvörur, svið, innmat, svínakjöt, egg og hey.
Eins hafa talsmenn ríkisstjórnar Íslands orðað það að íslenskir ríkisborgarar og fyrirtæki njóti sömu viðskiptalegra réttinda og færeyskir ríkisborgarar og fyrirtæki og öfugt. Þau svið sem menn tala um þörf á undanþágum á eru fjárfestingar í sjávarútvegi og heilbrigðisreglur varðandi landbúnaðarvörur.
Til að vinna að framgangi málsins og undirbúa samninga mun utanríkisráðuneytið stofna vinnuhóp með fulltrúum þeirra ráðuneyta sem hlut eiga að máli, en einnig er ætlunin að athuga þann kost að samningurinn næði til annarra sviða eins og menningarmála, menntamála og samgöngumála.
Umræddur fríverslunarsamningur sem tilstendur að útvíkka tók gildi 1992. Hann tekur til fríverslunar með iðnaðavörur og fisk og aðrar sjávarafurðir. Einnig er kveðið á um lækkaða tolla á landbúnaðarvörum samkvæmt sérstökum samningi.
Hins vegar er það ljóst að ég hef ekki verið í neinu bullandi blaðursstuði og hef því blaðrað lítið hér. En ofangreint var blaður dagsins. blaður gærdagsins kemur hér:
Til hamingju með Prófkjörið í Reykjavík - Davíð fékk það sem hann átti skilið, - góða kosningu.
Glóðarhausinn er orðinn aldargamall, hans líkir ganga vel og standa vissulega fyrir sínu. Því ber að fagna.
Blaðri lokið í bili en gestum blaðursins er boðið að njóta þess sem er hér til hliðar fyrir gesti og gangandi
19.11.02
Það var víst á þessum degi fyrir um 139 árum að Abraham Lincoln hélt ræðu sem kennd hefur verið við Gettysburg. Ætli Valdi Víðis fagni því ekki eins og þjóðhátíð? En það eru þó ekki nema 25 ár síða Anwar Sadat forsætisráðherra Egypta varð fyrst forsætisráðherra Arabaríkis til að heimsækja Ísrael. Síðan þá hafa of margir látið lífið í þessum átökum. Í Ísrael eru menn að velja sér leiðtoga og gildir það hvorttveggja um Verkamenn og Likudflokkinn. Svo má búast við því að Danskir Jafnaðarmenn velji sér nýjan foringja úr því að Paul Nyrup hefur sagt af sér. Það er spurning hvort Mogens Lykketoft sé yfir höfuð nýr.
Svo á Anfinn afmæli
14.11.02
Færeyskar tölvugerðar myndir má finna hér.
Hægt er að skoða fleiri ef menn velja "síggj filmanar". Þessi bretta síða er kanski meira fyrir Geira.
Annars veit ég tæpast betur en að Jón Steinar hafi rétt fyrir sér um að réttast væri að endurtaka prófkjörið. Ég ætla ekki að segja félögum mínum í vestrinu fyrir verkum en þeir ættu kannski að íhuga frekar hvort endurtaka ætti prófkjörið.
En ánægjulegt er að Sveinn Heiðar skuli vera farinn að ræða uppbyggingu í Fjarðarbyggð.
13.11.02
Kannana sjúklingar...
.. geta nú glaðst því að enn ein könnunin á vefnum hefur bæst við í kannanaflóru vefheima og vísa ég beint á þessa síðu sem ég rakst á og velti því fyrir mér hvort þetta sé liður í endurreisn orðspors Ferguson sjálfur standi fyrir þessu...
Enn um klámsýningamál í Færeyjum
Fjöldi fyrirspurna, hefur einhvern vegin ratað til mín eftir að ég færði í orð að hótanir og sprengingar sem hafa rofið annars friðsamlegt líf Jenis av Rana lögþingsmanns hins kristilega Miðflokks í Færeyjum. Því upplýsist ég að það var Canal Plus sem hafði klámmyndir á dagskrá og þótti Jenis av Rana það ekki sæma að Televarpið dreifði slíku efni. Ekki hefur frést neitt af þessu síðan 22. október. Tæpast er hægt að segja annað en að Jenis sé umhugað um hreinlífi Færeyinga.
12.11.02
Hefur hvalur eða hvalir einhvern tíman gert eitthvað fyrir þig? Annað þá en kvalið þig. Mér er spurn. Sá sem stendur fyrir þessari síðu telur hvali drekka sjóinn og éta sjómenn. skyldi Grétar Mar vita af því??
En Valdimar Víðisson fyrrum Bolvíkingur þá Ólafsfirðingur svo MA-ingur og nú leiðbeinandi á Álftanesi, er með miður skemmtileg ummæli á síðu sinni um Villa Egils sem ég vil síður hafa eftir honum. Bjarni sonur Vilhjálms er drengur góður og ég hef ekki reynt Vilhjálm af öðru. Mistök eru mistök, sama hver veldur þeim eða hvaða afleiðingar þau hafa. Svo er bara að bregðast við þeim, fara varlega í upphafi svo líkur á mistökum séu minni en ella
11.11.02
Hótanir og sprengingar
Ótrúlegt en satt þá koma þessi tíðindi ekki frá Gazaströndinni að þessu sinni heldur frá frændþjóðinni í Færeyjum. [Það eru sennilega Norðmenn sem eru ábyrgir fyrir voðaverkunum, þó þeir hafi ekki líst ábyrgð sinni á verknaðinum sem greint er frá hér fyrir neðan.]
Á aðfaranótt sunnudagsins var póstkassinn fyrir utan hús Miðflokksmannsins Jenis av Rana sprengdur í loft upp. Heimilisfólkið hafði rétt gengið til hvílu þegar mikill og hávær hvellur barst þeim til eyrna. Svo mikill varð hvellurinn að nágrannar Jenis urðu og varir við hann. Um þar síðustu helgi komu nokkrir ungir menn og knúðu dyra heima hjá þingmanninum sem var ekki heima við en þeir greindu konu Jenis frá því að hann yrði neyddur til svara fyrir "klámstöðina". Jenis hefur greint frá því að síðustu tvær vikurnar hafi hann fengið ófáar hótanir sem hann tengir við mótmæli sín við sýningar leyfi Televarpsins á klámmyndum. Einnig segist hann hafa fengið hótanir um það leiti sem umræða um skækju lifnað stóð sem hæðst. Rannsóknarlögreglan kannar nú póstkassamálið.
Ótvíræður ...
... sigur Sturlu er heitasta fréttin af sjálfstæðismönnum í dag, Vilhjálmur Egilsson fær ekki eins mikla umfjöllun. Prófkjör eru prófkjör og virka á þennan hátt. Vilhjálmur naut stuðnings í fyrsta sætið þar sem Húnvetningar og Skagfirðingar voru annarsvegar og svo vildu kjósendur annarstaðar úr kjördæminu hafa hann í 5. sæti. En prófkjörið er búið og svo virðist sem þriðja kynslóðin frá Akri geri nú vart við sig í íslenskri pólitík og njóti meiri stuðnings til þess en Jón sonur Magnúsar frá Mel. Það er gott til þess að vita að ekki skorti sjálfstætt fólk vestan Tröllaskaga. Svo er líka gaman til þess að vita að fleiri (5.994) vildu hafa áhrif á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæminu en á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík (3.605) og Suðvestur kjördæminu (1.890) sem hlýtur að geta aukið vonir manna í Norðvesturkjördæminu og reyndar á landinu öllu til kosninganna 10 maí n.k. þ.e. að töf verði á því að heiti Samfylkingarinnar verði lýsandi fyrir inntak og eðli flokksins.
Hinsvegar
Ef nú væri árið 1918 og tæknin væri eins og hún er í dag, værum við að fagna lokum fyrri heimstyrjaldarinnar og þá held ég að prófkjör kæmust ekki í umræðuna.
6.11.02
Kvenréttindi = Jafnrétti? Jafnt er meira - fyrir konur!
Deiglan, segir margt en segir hún allt sem segja þarf. Í nýlegum pistli sem birtist á Deiglunni sagði:
Hugmyndir eru uppi um að draga úr kröfum í raunvísindanámi til að það henti stúlkum frekar. Sumir telja slíkar hugmyndir vera niðurlægjandi fyrir konur. Væri þá ekki sambærileg hugmynd að skylda stúdínur í hjúkrunarfræði og hugvísindagreinum til að klæðast efnislitlum skólabúningum til að auka hlutfall karla í slíku námi?
Reyndar skrifaði Brynjólfur Ægir Sævarsson aðeins meira en þessar línur hér að framan og vitnaði m.a. í orð Rósu Erlingsdóttur jafnréttisfulltrúa HÍ. Með þeim ummælum sem Brynjólfur hefur eftir Rósu held ég að lekur dallur kvenöfgahyggju hafi sokkið. Því Rósa virðist eins og svo margir sem ræða um jafnréttismál einblína á hina kvenlegu hlið jafnréttismála þ.e. ræða þau atriði þar sem konur þurfa að hafa sig allar við til að standa jafnfætis körlum. En minnist ekki á þá þætti þar sem karlar standa konum langt að baki.
Það á að fjölga konum í raunvísinda námi, en það er ekkert sagt um hlut karla í uppeldis og umönnunarfræðum. Einhverju sinni heyrði ég að konur ættu að fá ókeypis aðstoð í stærðfræði til að auka hlut þeirra í raungreina námi inna HÍ, en sambærileg aðgerð fyrir karla var ekki var ekki í umræðu um þær greinar þar sem karlar eru í minnihluta.
Ef leggja á mikla áherslu á jafnrétti þá hlýtur jafnrétti að eiga við allstaðar en ekki bara vera einkaréttur kvenna annars erum við að tala um kvenréttindi en ekki jafnrétti.
Þykir mér því augljóslega pottur jafnan víða brotinn í jafnréttisumræðu sem liggur inn á þessar brautir.
Því er hægt að velta fyrir sér hvort jafnrétti sé mannréttindi eða bara kvenréttindi og þá hvort jafnt sé meira, - fyrir konur.
5.11.02
Ný mið
- Ráðstefna á Sólborg
Því miður mun Jörgen Niclasen ekki láta sjá sig enda eru færeyskmið tæplega ný.
Stafnbúi, félag nemenda í auðlindadeild og Hið Íslenska Sjávarútvegsfræðafélag halda ráðstefnu föstudaginn 8. nóvember nk. klukkan 13 - 17. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Ný mið“ og verður hún haldin í stofu L201 á Sólborg við Norðurslóð á Akureyri.
Dagskrá
13:00-13:30 skráning
13:30 Setning
Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra
13:45 Aukið virði sjávarafurða - næstu skref
Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra
14:05 Umhverfismál og orðstír sjávarútvegs á alþjóðavettvangi
Kristján Þórarinsson, stofnvistfræðingur LÍÚ
14:25 Eldi nýrra tegunda
Erlendur Steinar Friðriksson, sjávarútvegsfræðingur
14:45-14:55 Kaffihlé
14:55 Aukning afkasta með tækni
Guðjón Stefánsson, Marel
15:15 Sóknarfæri íslenskra sjávarafurða á heimsmarkaði
Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Markaðssviðs SÍF
15:35 Lífefnavinnsla úr rækjuskel
Jóhannes Gíslason, Prímex
15:55 Vannýttir stofnar eru viðbótar möguleikar
Hrafnkell Eiríksson, Hafrannsóknastofnun
16:15 Pallborðsumræður
16:45 Ráðstefnuslit
Svo er bara að fjölmenna
1.11.02
Það er gaman
Já það er gaman að fá greitt fyrir vinnu ágústmánaðar í nóvember. Það gefur því síður á bátinn í dag en í gær.
Annars eru menn að tala um það að þetta með Ráeyri ehf. sé forleikur að stofnun þriðja sjávarútvegsrisans svo kom í ljós að Eimskip, eigandi ÚA, Sjóvá Almennar, hluthafi í Eimskip og Skeljungur, sem hefur stjórnarmann Eimskips sem forstjóra séu hluthafar í Ráeyri.
Þormóður Rammi og Þorbjörn Fiskanes eru nú líklegir til að auka samstarf sín á milli. Mér þótti fréttaflutningur af þessum kaupum Ráeyrar á bréfum Afls í Þormóði Ramma athyglisverður þar sem sagt var að kaupin tengdust átökum um eignarhald á bréfum í SÍF, en Þormóður Rammi er stór hluthafi í Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna en ekki í SÍF. Því þykir mér þörf á því að menn sem vilja fjalla um þessi viðskipti kafi ögn dýpra í málið.
30.10.02
Norðmenn ganga of langt!
Fiskaren krefst afsagnar Árna M. Mathiesen
Norska sjávarútvegsblaðið Fiskaren krefst þess í ritstjórnargrein í dag, að Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra segi af sér ráðherradómi eftir að hann tapaði meiðyrðamáli sem blaðamaður blaðsins, Magnús Þór Hafsteinsson, höfðaði á hendur honum. „Ráðherra sem verður ber að ósannindum um ólögmætt athæfi í íslenskum sjávarútvegi getur ekki setið áfram. Hvaða trúverðugleika hefur ráðherra, bæði heima og erlendis, sem ber á móti skjalfestum lögbrotum?" segir í ritstjórnargrein Fiskaren.
Blaðið hefur eftir Eiríki Tómassyni prófessor að stjórnskipulega séð hafi dómurinn engar afleiðingar í för með sér fyrir ráðherrann. Ennfremur hefur Fiskaren eftir Hjálmari Jónssyni, formanni Blaðamannafélags Íslands, að dómurinn sé sigur fyrir íslenska blaðamennsku. Sagt er frá umfjöllun Fiskaren í Journalisten, fagriti norska blaðamannafélagsins, í dag undir fyrirsögninni: „Sjávarútvegsráðherra fastur í netinu"
Tilvitnun í frétt Morgunblaðsins líkur. Ég veit ekki í hvaða neti Árni ætti að vera fastur, öðru en neti norskra netmiðla. Það er búið að nefna til sögunnar mál sem tengdist Ísafoldar Birni Jónsyni ráðherra og Landsbanka Íslands og annað tengt Ólafi Jóhannessyni framsóknarmanni. Auk þess man ég að ég las um að Ólafur Thors hefði leyst flokksbróður Magnús Guðmundsson sinn af dómsmála ráðherra stóli 14. nóvember 1932 til 23. desember sama ár meðan sá síðarnefndi stóð í málaferlum við Hriflu Jónas fyrrum dómsmálaráðherra.
Ég held að Norðmenn eigi í alvöru talað nóg með sín mál og mér finnst það ekki í þeirra verkahring að skipta sér að hver sé ráðherra í hvaða málaflokki. Íslendingar eru sjálfstæð þjóð.
28.10.02
Ég vil benda öllum á hugsanir og skrif Stefáns Friðriks, nú þegar maður er búinn að skipta yfir á vetrardekkin og klár í veturinn.
Ég tók á móti vetri Konungi að nýstárlegum sið þar sem Sviðum var skipt út fyrir berjalegið Lambalæri, annars á maður og eftir að prófa hið lífrænt ræktaða lambakjöt sem nú er á boðstólum. Reyndar var sviðaveislan viku fyrr en venjulega vegna bráðrar snjókomu. Svo notaði ég fyrsta vetrardaginn líka til snjómoksturs, gatan mín er núna orðin fín. Að loknu sumri lítur maður yfir farinn veg og þá sér maður að þetta sumar var hið ævintýralegasta þar sem hápunktarnir voru að sjálfsögðu, útskrift, Færeyjar og Sjávarútvegssýningin.
Í vikunni sem leið lögðu nokkrir félagar mínir út í óvissuna og ætla þeir að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík ég óska þeim alls hins besta, hins vegar vil ég líka óska frambjóðanda ungra Dalamanna velgengni í prófkjörinu í norðvesturkjördæminu. Skjöldur Orri Skjaldarson er eini ungliðinn sem tekur þátt í hinum "banvæna slag" í norðvesturkjördæminu, vonandi vegnar honum líka vel, og það er óskandi að Dalamenn fái einn góðan í stólinn hans Bjarna frá Vogi
Það var gaman að sjá hvað ósköp lítið getur glatt vesælan, eins og þessi litla þátttaka í póstsendingum samfylkingarmanna virðist gera fyrir Samfylktafólkið. Annars kemst Valdimar Agnar vel að orði eins og svo oft áður.
Þeim í austurvegi tókst að skjóta fólki skelk í bringu ef við veltum fyrir okkur lífi í frjálsu samfélagi og þótti mér þau ummæli í fréttunum í gærkvöldi lýsa fréttaflutningi af þessu upphlaupi mannræningjanna í Moskvu.
21.10.02
Snjór.
Það snjóaði meðan ég fór að orðum Kjartans Ólafssonar og tók slátur. Hinsvegar yrði hann sennilega seint ánægður með hvað við tókum fá slátur, þetta var kannski svona mest til að sýnast.
Það er margt skrítið undir sólinni, Íslendingum þykir ró og kyrrð þægileg til af slöppunar, og sumum finnst þögnin "þokkalega þokkaleg" en ég þekki eina frá Malasíu sem finnst þögnin þrúgandi. Svona er nú það. Annars er alltaf gaman að lesa gott lesefni
14.10.02
Fín Fjarstýring
Nú spyr ég þá sem hafa reynt eitthvað svona; Virkar þessi "fjarstýring" í raun á þennan hátt?
13.10.02
HM í dorgveiði fór fram á Útgerðarfélagsbryggjunni á föstudaginn. Þar voru færri keppendur en mörg undanfarin ár, en þó ríkti hinn skemmtilegi keppnisandi og veiddu sumir meira en aðrir. Svo var það sviðaveisla í gær, forskot tekið á sæluna því eins og menn vita þá hefst veturinn ekki fyrr en eftir tvær vikur tæpar. En veislan hjá Óttari var með afbrigðum góð. Það er gott að fá mat þó það sé ekki nema einstöku sinnum.
Af slappandi áhrif sunnudagsins eru að koma fram, loksins loksins.
10.10.02
Ný og nauðsynleg hugmynd
Kristbjörn stingur upp á raunhæfri leið að lausn eilífðar vandamála með kjördæmi og þverskurð kjósenda á Alþingi. Annars Væri þá nær að hafa þessa kjósenda skiptingu annað hvort þannig að allir þeir sem væru á ákveðnu aldursbili t.d. 18-28, hefðu ákveðinn fjölda af þingmönnum jafn marga og aðrir aldurshópar, eða þá að þessi aldurshópur hefði þann fjölda þing manna sem endurspeglaði hlutfall þeirra í hópi kjósenda.
Hinsvegar birti Baggalútur tímamóta könnun á síðu sinni.
9.10.02
Hugleiðingar um sjónvarpsdagskrá.
Valdi hefur, eins og venjulega skoðun á öllu mögulegu sem ómögulegu, en það er nú bara hann, eins og hann er. Þetta er hinsvegar mjög athyglisverð hugmynd hjá drengnum. Hann má eiga það. Ég tala ekki um ef það væru ekki frystitogarar nútímans heldur væri nær að hugleiða síðutogarana og þá fremur yfir vetrar mánuðina en sumar mánuðina. Svo það væri eitthvað fútt í myndskeiðunum, þegar lægðirnar gengju yfir með tilheyrandi sjógangi.
Ef frystitogari yrði fyrir valinu þá mætti líta framhjá þessum nýjustu sem eru með mestu þægindunum.
8.10.02
Um atvinnuástand á Akureyri
Rangfærslur þær sem birtust í Vikudegi skömmu fyrir mánaðarmótin september/október um vaxandi atvinnuleysi á Akureyri eru lýsandi dæmi um þau óvönduðu vinnubrögð sem einkenna oft skrif blaðsins.
Lítum á nokkrar staðreyndir:
í ágúst var atvinnuleysi á Akureyri um 1,6% en var á sama tíma um 2,2% á landsvísu.
frá miðju ári 1999 fram til áramóta 2001 var atvinnuleysi með lægsta móti frá því að skráning þess hófst.
í lok ágúst 2002 mældist atvinnuleysi á Akureyri hið fjórða minnsta frá ársbyrjun 2001.
á sama tíma og atvinnuleysi hefur aukist í Reykjavík er það á Akureyri komið niður fyrir landsmeðaltal
íbúum fjölgar stöðugt á Akureyri, til að mynda 61 á fyrri helmingi ársins 2002. Aðeins einu sinni á síðustu fimm árum má finna meiri fjölgun á sex mánuðum.
það er frekar skortur en offramboð á fasteignamarkaði á Akureyri
Ég bendi lesendum á grein eftir Benedikt Guðmundsson forstöðumann þróunarsviðs AFE. Hana er að finna á vef Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og ber yfirskriftina, Atvinnuástand á Akureyri.
7.10.02
Amen á eftir efninu
Um nýliðna helgi hélt ég að mestu leiti til á Hótel Héraði á þingi Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Það var gaman. Hinsvegar vannst mér ekki tími til að ganga um Egilsstaði, ég náði samt að líta inn í söluskálann, en það var eiginlega ekkert meira en svo. Enda varð ég ávíttur fyrir vikið. Kristinn Pétursson bauðst til þess að taka að sér yfirstjórn Hafró, það besta við hans mál var að hann var raunsær í orðum sínum um Einar nokkurn Júlíusson. Hann frábauð sér að það væri nauðsynlegt að láta ritskoða gögn frá Hafró í Kaupmannahöfn áður en þau bærust í hendur ríkisstjórnarinnar.
Geir Haarde talaði um efnahagsmál og skattalækkanir. Sigríður Ingvars talaði um sjávarútvegsmál en á öðrum forsendum en bakkfirðingurinn. forseti Alþingis fjallaði um stjórnmálaviðhorfið og kom þar inn á vegagerð sem stytti leiðina milli Reykjavíkur og Akureyrar um 85 km, sem er nokkuð sem við verðum að gera.
Tómas Ingi talaði um Menningar stofnun sem bæði Danir og Íslendingar gætu staðið að. Egill Jónsson Seljavallagoði minnti á að hann væri heimamaður í Norðausturkjördæmi. Arnbjörg skemmti sér vel ræddi um framkvæmdir tengdar stóriðju og samstarfi sveitarfélaga auk Grettistaki Blöndals og þingmenn okkar ætluðu allir að halda áfram í stjórnmálum.
1.10.02
Blöndagur
Í dag verður Alþingi Íslendinga sett. Að því tilefni vil ég minna á að með sparsemi og nægjusemi næðu Íslendingar aldrei settu marki heldur með bjartsýni stórhug og atorku. Eins og Ólafur okkar Thors komst svo skemmtilega að orði fyrir nokkrum misserum.
28.9.02
Þetta var fínt.
Við, Stafnbúa yfirstéttin, fórum í Ólafsfjörð í gær, ég reyndar eftir skemmtun með Sjávarútvegsskóla Sameinuðu Þjóðanna En mönnum gafst þar færi á að smakka Höfrung og Álku auk annars sjávarfangs sem bragðaðist fullkomlega einsa og vera ber.
26.9.02
Þetta er yndislegt
Það er ekkert sem að breytir því hve gaman ég hef af því að vera önnum kafinn, það drepur mig ekki iðjuleisið í dag, til allrar guðs lukku.
23.9.02
Sádar syngja sælir
Í dag er þjóðhátíðadagur Sádi Arabíu en vart verður hægt að kenna þeim ávissa atburði um olíuverðs hækkun í morgun og 19 mánaða hámark á verði hráolíu. Frekar er hægt að beina sjónum að hugsanlegum hefnum fyrir 11. september í fyrra. Þó að Þjóverjar virðast verða tregir í taumi til átaka, sérstaklega eftir grænt áhlaup Fischers um helgina. Skrýtið samt að jafn íhaldssamur maður og arftaki beljakans í Kristilegum Demókrötum virðist vera að honum hafi tekist að hrasa á hlaupi sínu upp tröppurnar á kosninga fundi og að missa atkvæðið sitt í gólfið rétt áður en hann aðgætti í allra augsýn hvort hann hefði kosið RÉTT. Ætli hann og hans flokkur hafi misst einhver atkvæði þegar Stoiber missti sitt eigið atkvæði. Kanslarinn ætti að vera græningjunum þakklátur fyrir þeirra sigur. Það má kannski segja að úrslitin fyrir örlög leiðtoga stóru fylkinganna hafi ráðist af gengi meðreiðarsveinanna. Fremur en vörumerki stígvéla sem frambjóðendurnir notuðust við fyrr í haust/sumar. Annars var þetta eins og venjulega; vinstri mönnum tekst allt of oft að slá ryki í augu kjósenda, þrátt fyrir svikin loforð, litlar sem engar efndir og bága frammistöðu í efnahagsmálum.
19.9.02
Morgun stund gefur gull í mund
og grettu á fés. Þó að Matthías einhver hafi og myndi kalla Geir H. Haarde fésmálaráðherra, vegna eigi réttrar eignarfallmyndunar orðsins fé-me-me-fjár.
En nóg vitleysa í bili. Ég get talist svo gamaldags að sumum framhaldsskóla snótum þykir nóg um, vegna "ógesla" gamaldags hugsana, en var við einhverju öðru að búast nú á þeim tímamótum að Færeyingurinn/Íslendingurinn/Mexíkaninn ég yrði hálf fimmtugur. en það gerðist nú um daginn og fundi varð breytt í afmælisveislu.
Guð gefi ykkur góðan dag - hvort sem þið trúið eður ei.
16.9.02
Ný vinnuvika byrjuð.
Eftir skemmtilega ferð á Hellu þar sem Ingvar Pétur stóð sig eins og hetja í skipulagningu, heldur lífið áfram sinn vanagang. Það var gaman að hitta flokkssystkini undir jafn skemmtilegum aðstæðum og þegar rædd eru næstu skref. Ég vil þakka öllum sem þangað mættu og Ingvari frá Hellu, þó alveg sérstaklega.
Fyrir utan það þá halda Mexíkanar daginn hátíðlegan í dag sem er ekkert nema gott mál.
13.9.02
Frelsari Heimdallar hefur talað
Ég Vil árétta að það heitir ekki milli þing heldur heitir það málefnaþing og Guðmundur hann á alveg jafn mikið erindi á Hellu og ég ég meina þó að hann sé "fluttur á mölina" og þá það sé fyrir fullt og allt þá má hann eins og aðrir malarverjar vel líta annað slagið útfyrir borgarmúrana, það er ekki eins og Ingvar Pétur og hans sjálfstæðu Fjölnismenn séu þekktir fyrir að ráðast á borgarbúa bara fyrir að þeir séu úr borginni. Ég hvet Guðmund til að mæta og bendi honum eins og öðrum kunningjum mínum í þessari stórhreyfingu að það ráða allir sjálfir hve virkir þeir eru í félagsstarfi, hvort sem það er í Sjálfstæðisfélagi Fljótsdalshéraðs, Kvenfélaginu Bláklukku Egilsstöðum, Golfklúbbnum Keili, Skautafélagi Akureyrar eða Íslandsdeild Amnesty International.
Þorsti manna skiftir engu máli í því sambandi ungir menn eiga að ræða málin.
12.9.02
Blessuð Fiskistofa og bölvun hennar
Sumir vita að Embættismenn Fiskistofu eru litnir illum augum manna sem lifa og hrærast í veiðum og vinnslu sjávarafurða. Fiskistofa hefur það hlutverk að fylgjast með að allt sé tipp top í fiskvinnslu húsnæði á víð og dreif um landið, uppfylli ýtrustu gæðakröfur. Eins Aðgætir Fiskistofa að aflinn sem berst á land er löglegafenginn með réttum veiðarfærum og sé veginn við löndun.
Gæfa Íslenskrar fiskvinnslu er sú að íslenskar sjávarafurðir eru seldar sem gæðavörur og því fylgir mikil ábyrgð, því eru kröfur sem fyrirtækin gera til sinnar egin framleiðslu, og framleiðslu umhverfis að staðaldri fremur miklar. Fyrst og fremst vegna skilyrða kaupenda og tíðra heimsókna frá kaupendum og vætnalegum vænlegum kaupendum. Markaðurinn á að ráða. Kaupanda er seld vara sem hann kærir sig um að kaupa fyrir umsamið verð.
Vegna ýmiskonar athugasemda frá Fiskistofumönnum eru þeir af sumum litnir hornauga. Mér þótti því skondið að sjá netfangs eins af lykil starfsmönnum Fiskistofu gudkrim@.... hvort það stendur fyrir Guð krimmi eða Guðmundur krimmi veit ég ekki þó opinber merking sé Guðmundur Kristmundsson. Hef ég reyndar ekki reynt Guðmund að öðru en hann sé gæðablóð þó menn í meiri aksjón efist um þá sem vinni með honum hjá Fiskistofu bákninu.
11.9.02
Alvarlegra yfirbragð ferðalaga eftir 11. sept 2001
Ég fór til Færeyja á fimmtudegi 25. júlí frá Seyðisfirði með Norrænu. Fékk mér svefnpokapláss, þó ég væri ekki með svefnpoka, á efstu hæð í káetu með Tékkum sem höfðu verið á tveggja/þriggja vikna hringsóli um Ísland. Ég hent töskunni þarna upp og fór svo niður og settist út og sat þar meðan síðustu farþegarnir voru að koma sér um borð, í þann mund sem skipið sleppir landfestum fer ég inn á Kaffiteríuna, þar rek ég augun í Moggann opinn á borði og glugga svona rétt í hann. Þegar eigandinn, Steinar, kemur tökum við tal saman, í ljós kemur að við eigum nokkra sameiginlega kunningja, við hefjum bjór smökkun, fyrst mjög dannaða og civilízeraða, svo kemur þar sögu að ykkar einlægur á erindi sem ekki verður afgreitt á almenningsfæri. á leiðinni þangað sem erindið verður afgreitt mæti ég Halldóri Blöndal sem ég heilsa og hann spyr hvert ég er að fara, ég segi það og hann segir "nei það máttu ekki" ég undrast þessa afskiptasemi og spyr hversvegna ekki, HBlö segir "nú ég er að fara þangað". Nú þegar ég sný aftur þá situr HBlö með Steinari og skrifar, ég skipti mér ekkert að því og ræði við Steinar, en HBlö er að skrifa ræðu og spyr okkur um hitt og þetta sem við höfum ekki hugmynd um, svo kveður hann og við Steinar höldum smökkuninni áfram, ánægðir með að verða kenndir á sjó þar sem menn átti sig ekki almennt á því hverjir séu fullir og hverjir ekki, því allir eigi jafn erfitt með að ganga eðlilega, við rokna kátir með uppgötvunina, en samt hreyfðist skipið ekki að ráði, þó sumir hafi orðið sjóveikir.
Svo föttum við að það sé kannski betra að drekka á barnum en á Kaffi teríunni, og við Steinar þangað, það þarf ekki að spyrja að því að um leið og við stígum inn á barinn þá er hrópað á mig "Arnljótur, á ekki að heilsa manni" ég lít við og þá sitja þar í horninu HBlö og frú ásamt einhverjum öðrum mönnum, við Steinar erum kurteisir þrátt fyrir allt og allt og heilsum þeim og kinkum kolli til mannanna, förum svo á barinn og pöntum bjór, gengilbeinan á barnum spyr "hvað þekkið þið Kapteininn?" við alveg furðu lostnir, "nei Kafteininn hver er það eiginlega", "Nú þið voruð að tala við hann, Kapteinninn situr þarna í horninu" "hvað er að þér stúlka þetta er ekkert kafteinninn, þetta er bara Halldór Blöndal" "Og hver er það?" spyr hún, "Halldór, hann er forseti í Alþingis á Íslandi" Og henni fannst eitthvað til þess koma.
Nema svo heldur gleðskapurinn hjá okkur Steinari áfram og minnið er ekki alveg jafn gott alltaf, nema við förum í fríhöfnina og kaupum skammtinn okkar, og á Viking Clubinn og svo rankar maður við sér og ætlar að undir búa komu sína til Færeyja, gott ef ég sá ekki til lands í Færeyjum, ég í káetuna mína og ætla mér að kippa niður töskunni minni sem var í efstu koju. Það er svona málmstigi sem er færanlegur þannig að hægt er að skella honum á þá koju sem viðkomandi á erindi í, ég ætla að gera svoleiðis en stilli stigann rangt af og hryn niður þegar ég er kominn langleiðina upp, einhver vaknar í klefanum og kveikir ljósið ég ber fingurinn upp að vörunum til merkis um að ekkert sé að og viðkomandi eigi bara að hafa hljótt um sig.
Nú svo vakna ég og lít á klukkuna 08:54, Nei hugsaði ég, þá er klukkan 09:54 í Færeyjum og við eigum að koma til Færeyja kl. 06:00 að Færeyskri tíð. maður hefur heyrt um seinkun á ferjunni en þetta er svolítið mikið, ég niður á veitingastaðinn og vind mér að næsta manni og spyr hvenær komum við til Færeyja, hvat svarar hann nær sleppa vit til Føroya, - tað blír mánadagin om femtíðin, - nei þú misskilur, tað er fríggjardagur í dag og vit skulum beinavegin til Føroya" en kappinn sem ég er að spjalla við segir blá kalt upp í opið geðið á mér, vit koma til Føroya á mánadagin om femtíðin nú sigla vit til Danmarkar, Félaginn hafði þá sofið af sér Færeyjar. nú ég var sendur beint upp í brú til að ræða við kapteininn um nafn og þess háttar fyrir tryggingar, þar fékk ég að hringja til Færeyja til að tilkynna að ég væri á lífi, til Jógvans í Skopun og sagði honum að ég gæti eiginlega ekki heimsótt hann þann daginn úr því að ég væri enn um borð í Norrænu, vitanlega skildi hann fátt í því að ég væri í raun á leið til Færeyja þó ég hefði siglt úr Þórshöfn tveimur tímum fyrr. Mér er sagt að ég eigi að gefa mig fram við þjónustu borðið, og ég fer beint þangað, og þá dettur mér það snjallræði í hug að spyrja hvenær við komum til Danmerkur, ég fæ gott svar við þeirri spurningu 17/18 á laugardegi, og þá spyr ég er eitthvað flogið frá Billund eða Köben, þennan samalaugardag eða sunnudag, því hátíðin hefjist formlega kl. 14:00 á sunnudeginum 28. júlí.
Jú það er eitt flug frá Blllund þarna um laugardagskvöldið en þó að ég tæki fyrstulest og rútu o.s.f.r.v. þá missi ég af því flugi með 15 mínútum. En Köben, en Köben er eitthvað flug frá Köben, og ég varð bókaður í flug frá Köben kl. 8:55 á sunnudagsmorgun. Nú þá var að ná sér í símanúmer hjá félögum mínum í Danmörku, frá því að ég hjólaði á Sjálandi. Hringdi heim úr tíkalla símanum um borð og fékk nokkur númer.
Þá fór ég að spjalla við þessa Tékka sem hafði ekki dottið í hug að vekja mig þarna þegar ég var loksins sofnaður, því hvaða áhuga höfðu þau á Færeyjum, eða þá að vekja tröllið mig. Nema hvað svo eru þeir, Tékkarnir þetta líka indælisfólk sem höfðu verið á tveggja vikna ferð um Ísland, og við spjöllum saman á siglingunni suður til Danmerkur. Þeir kenna mér, af öllum mönnum, söng sem ég kyrja með þeim og spyr svo um þýðinguna, þá er inntak viðlagsins á þessa leið: "drekktu vatn, drekktu drekktu vatn, drekktu vatn, drekktu ekki romm", ég skildi lítið í því að þau væru að kenna mér svona söng :)
Nema svo þegar við nálgumst höfnina í Hanstholm, þá segja tékkarnir að þeir hafi ekið um landið í rútu og þar sé laust pláss ef ég vilji slást í för með þeim þá yrði það ekkert mál og mér að kostnaðarlausu. Þetta var tilboð sem ég gat ekki hafnað nema bara vegna þess að ég hafði vegabréfið ekki meðferðis. Jæja ég kveð tékkana og áhöfn Norrænu er glöð að sjá að ég komist klakklaust í land. Ég fer með rútunni til Álaborgar og er þá hringjandi í mína dönsku vini sem gengur svona og svona, nema hvað ég ráðgeri að stoppa í Árósum og kíkja í heimsókn til tveggja, hugsanlega þriggja vinkvenna. minna. Á brautarstöðinni í Álaborg stend ég eins og álfur út úr hól. og kann ekkert á sjálfsalana, og bið um hjálp hjá nær staddri snót en í ljós kemur að hún er Færeysk og að samaskapi nýkomin til Danmerkur og kann ekkert á sjálfsalann heldur. en hún spyr mig hvert ég sé að fara, á Kastrup með smá viðkomu í Árósum, ég þarf að ná flugi frá Kastrup kl. 9 í fyrra málið. Hvert ætlar þú þaðan. Nú rakleitt til Færeyja segi ég. Bíddu við varst þú ekki í ferjunni með mér jú, og ert að koma frá Færeyjum og ætlar strax aftur þangað. Hún hló nokkuð af gáfulegri ferð minni.
Svo spjölluðum við í lestinni, og ég stoppaði í Árósum fékk mér að borða með félögum mínum frá Helsingjaeyri og hélt áfram, sá Mið-Jótland og Fjón í myrkri, [Ég sá skilti sem ástóð; Odense, þannig að ég hef verið í þessari dönskustu borg allra danskra borga], sem var mjög gott því ég hafði ekki farið út fyrir Sjáland áður. Svo slapp ég um borð í flugvélina á réttum tíma og flugið gekk vel og svo voru það Færeyjar, þegar ég var kominn tilkynnti ég það hlut aðeigandi aðilum, Jógvani og Ingu sem var kærasta Jógvans sumarið '99 þegar ég dvaldi þar, því Inga leyfði mér að vera hjá sér. Og svo hringdi ég í Hönnu sem var líka í skólanum á Helsingjaeyri, hún svaf en faðir hennar sagði að ég væri velkominn, þegar ég spurði hvort ég mætti ekki fá mér kaffi hjá þeim. hann hélt það og skemmti sér mikið yfir svaðilför minni. svo þegar ég nálgaðist Þórshöfn hringdi Hanna sjálf í mig og sagði að það gengi tæpast upp, því hún yrði ekki heima. Guð veit hvað henni gekk til, e.t.v. hefur hún ekki viljað sjá svona ferðalang þegar hún væri að dressa sig upp í hátíðar gírinn?. Nema hvað að ég var kominn til Þórshafnar kl 13:00 á sunnudegi og fór strax í sturtu hjá Ingu en hún var búin að fá sér nýjan Jógvan sem kærasta. Svo átt ég líka þessa æðislegu Ólafsvöku - sem kanski verður vikið að seinna.
10.9.02
Stefán stóð á ströndu var að troða strý, Stefán Snær er 25 ára í dag, egézégédré Stefán.
Það er ekki hægt að spyrja þegar norðlenskir "listamenn" eru annarsvegar. Hlynur hefur sýnt fram á það með óyggjandi hætti að hann er frændi Brynjars Gunnarssonar svo ekki verði meira sagt. Hvað sagði Steinn Steinarr ekki: formið er dautt en andinn lifir enn.
9.9.02
Sýningunni lokið
Sjávarútvegssýningunni er lokið. Þetta var mjög skemmtileg sýning, góður andi sem sveif yfir vötnunum þó að Samkeppnisstofnun hefði eitthvað atast í óskabarni þjóðarinnar.
Þó að ensku sé ekki mikið slett í íslensku í Færeyjum þá kyrjuðu einhverjir á kauffélaginu með Kyle Ma " It is in your eyes, the world needs KEA babe" Annars var létt yfir Magnúsi Þór Borgarstjórnarflokks starfsmanni Kjartani Framkvæmdastjóra og Jóhönnu fyrrum aðstoðarmanni í Valhöllu á fimmtudagsmorguninn. Af öllum stöðum var Frelsis Björgvin frjálsi á Kauffélaginu, ég vona að hann taki ekki út úr reikning þar. En Teitur Arason sást ekki á Ölveri, þó Karl Már kunni að hafa verið á Keltneskum krossi í líkkistu meðan hans var leitað á þeim stað, Króvatinn var í skjóli Málara. En Forrétirnir og veilsan var góð í Argentínu, Þó Skagstreningar hafi forðast Fræðingana. Kensl voru ekki borin á Vökuliða á Hverfisbarnum. OG Páll Þórsson var fjarri góðu gamni á Glaumbar, þó bekkurinn hafi verið þétt setinn á Kaffibarnum.
Kvæðið verður nú undið og snúið í kross:
Stefán G. Jónsson og Stærðfræðisnillingur höfundur sívinsælla, metsölubóka á borð við STÆ 323, STÆ 403, STÆ 102 og annarra tila úr sömu spennusagna röð á geisi gáfaðan son sem Sigurður heitir og er verðlaunagarpur af sviði Eðlisfræða, hefur strax ekki í nágrenni við þrítugt verið heiðraður fyrir eðlisfræði afrek sín. Hann fylgdi virgun vel og vandlega niður laugarveginnog tókst vel að forðast árekstur við Óla Magg og Þórdísi Jóns en sá sjóaði reyndi að sökkva honum í ruglinu. Forvitnaðist sá Færeyski og undraðist á því að Sigurður héti ekki Jón G. því sú var tíð er reynt var að fella Stefán á egin bragði og beita hann sjálfan tegrunar reikningi og deilda Stefán G. Jónsson og fá út son hans eða Jón G. Stefánsson. Sigurður sagði að það gengi ekki því faðir hans væri fasti og útkoman því augljóslega núll.
3.9.02
Nú eru um það bil upp á dag 63 ár frá því að heimstyrjöldin síðari braust út með látum á stjórnmálasviðinu ef okkar maður hefði verið upp hefðum við þá losnað við þennan óskapnað í sögunni eða hvað?
2.9.02
Þessi menningarhelgi er liðin.
Það þykir mér tíðindum sæta að Akureyringar hafi séð sóma sinn í því að reyna ekki að toppa Reykvíkinga. Eins og sumir muna þá komst það í fréttirnar að 68 manns særðust í ólátum í kjölfar menningarnætur í Reykjavík, nú fyrr í ágúst sem leið. Akureyringar héldu sína menningar nótt laugardaginn sem leið. Ég forðaði mér til Hjalteyrar þegar ég hélt að ólæti ætluðu að brjótast út, en svo varð ég aðnjótandi flugeldasýningar sem lýsti upp stjörnuhimininn þegar ég nálgaðist bæinn aftur. Hvorki varð ég var við ofbeldi né gripdeildir og er það vel.
30.8.02
Dagur eitt.
Fyrsti dagurinn er liðinn, hann varð viðburðasnauður, en það er varla hægt að ætlast til þess að stórtíðndi hendi á hverjum degi hvað þá þeim fyrsta. Sum sé Sigrún er farin suður fór í fyrradag, að læra ensku sagði hún. Það vita nú allir hvernig það verður, ó já. Annars heldur höfðinginn að við séum nú að fá okkar Evrópuregn líkt og bleytti aðeins í Tékkanum um daginn.
En í allri biðinni þá gleymdi maður að óska sveitungum sínum til hamingju með daginn.
29.8.02
Það er eins gott að maður er með svona þar tilgerðan hátalara á símanum, annars væri ég senni lega handlama eftir að hafa beðið í símanum í nærri 45 mín eftir að ná sambandi við Lækni eða lækna ritara á Landsspítalanum, fékk í staðinn, t.d. samband við Skrifstofustjóra Hjúkrunar, þetta væri eins og ef ég ætlaði að tala við rafvirkja hjá símanum, vegna símtækis að fá samband við samband við sölufulltrúa Internest eða eitthvað í þá áttina, ja hérna hér, ég held að Jón í Dagsins Önn þurfi aðeins að taka til hjá sér og þá á ég ekki bara við lokanir deilda.
28.8.02
Þá er þessi dagur búinn
ég er farinn heim, ánægður með dagsverkið
27.8.02
Ísland er vel rekið
Það eru hvorki meira né minna en 155 ár síðan Líbería eða Líberíu menn lýstu yfir sjálfstæði lýðveldis síns. En það varð svo ekki fyrr en um 110 árum seinna sem Ghana hlaut sjálfstæði. Ég er reyndar ekkert sérstaklega fróður í afrískri hreppapólitík, en ef ég man rétt þá er eiginlega ekki hægt að segja að tóm hamingja hafi umlukið líf Líberíu manna alla þessa tíð. Þær 3,2 milljónir sem búa á þessum 111 þúsund ferkílómetrum hafa það "ikke særlig godt". Landsframleiðsla á hvern Líberíumann er um 4,4% af landsframleiðslu á hvern Íslending, og Landsframleiðsla Líberíu er um 48,9% af Landsframleiðslu Íslands.
Líberíumenn flytja mikið út af demöntum, gúmmíi, við og kaffi svo eitthvað sé nefnt og þessa góðvöru selja þeir Belgum, Sviss(lending)um, (Amerí)könum og Frökkum. En sjálfir flytja þeir inn eldsneyti, efnavörur, vélbúnað og fjöldaframleidda vörur eins og matvæli á borð við hrísgrón. og þeir kaupa mikið af vörum frá suður Kóreu. Útflutningur Líberíumanna nemur um 32% af heildar innflutningi. og erlendarskuldir Líberíumanna eru í þokkabót um 15% hærri en erlendar skuldir okkar Íslendinga.
En það eru hinsvegar 56 ár síðan Orwell gagnrýndi kommúnistana réttilega með því sem hét í íslenskri þýðingu, félagi Napóleon, eða Dýrabær, eða Dýragarðurinn, Animal Farm.
23.8.02
Maður skifar minnst þegar maður hefur mest að gera
21.8.02
og silfurskotta er hætt við að halda áfram, ja hérna hér.....
19.8.02
Vörður er kominn með nýja stjórn og þar er Laurent formaður, Gumundur E. Erlendsson varaformaður, Víðir Guðmundsson gjaldkeri og Stefán Friðrik Stefánsson ritari, Atli Þór Ragnarsson er Meðstjórnandi. Í varastjórn eru Jóna Jónsdóttir Atli Hafþórsson og Bergur Guðmundsson. ég óska þeim til hamingju. Halldór Blöndal var flottur um helgina og gróðursetti trjáplöntur fyrir sig og Tómas Inga. Þetta var góður dagur.
16.8.02
Einhver Íslilja er hér með gott mál og þó, eða hvað. Hún veitir þessum leiðindar atvikum þó athygli. sem er vel.
Ég vaknaði vissulega þegar ég kom út í morgun, svona rétt eins og í Menntaskólanum hér áður fyrr, þ.e. fyrir daga Hóla tengibyggingarinnar, þá vaknaði maður við það að hlaupa á milli húsa, það var hressandi. og mér sýnist sem svo að það sé að glaðna til. hér fyrir norðan okkur. svo hver veit nema að það verði gott veður á morgun....
15.8.02
Þar sem að umfjöllunar efni gærdagsins snérist að nokkru leiti um Pakistan í gær þá eru það bræður þeirra Indverjar í dag sem athyglin beinist að, því þennan dag árið 1947 fengu Indverjar sjálfstæði en lýðveldis dagurinn er 26. janúar og 5 árum á undan þeim Pakistanska. En það varð víst Kjarnorkuvopnaspekúlant sem er orðinn forseti Indverja Einhver sagði að Hindúaflokkurinn hefði verið að launa honum fyrir að styðja kjarnorkuvæðingu Indlands í baráttunni við Islam sinnaða bræður Indverja sem lifa í Pakistan og því hefði hann orðið forseti. Annars þekki ég það ekki, en ég hélt að það væru einmitt Hindúar sem litu á kýr sem heilagar skepnur og væri því svo umhugað um velferð alls sem dregur andann, því þykir mér kjarnorkuvopnavæðing Indverja nokkuð vafasöm.
Úr því að talið barst að kjarnorku vopnum þá vil ég benda á að hér á landi er hópur manna sem skálar fyrir Norður Kóreu en skálar ekki fyrir Suður Kóreu úr því að þeir eiga engin Kjarnorkuvopn. En það held ég að sé merki um dómgreindarleysi, þ.e. kjarnorkuvopnavæðing Norður Kóreu, að vilja fremur drepa "óvininn" - Suður Kóreu, en að hjálpa "vininum" til lífs - íbúum Norður Kóreu.
14.8.02
Magnús Þór er já orðinn formaður Heimdallar, takið eftir þetta gerðist 9. ágúst sl. hann er líka orðinn starfsmaður Borgarstjórnarflokksins, þannig að hann er að öllumlíkindum horfinn eða að hverfa úr framkvæmdastjórastól SUS, það þykir mér slæmt. Hann er búinn að vinna vel þar og vildi ég síður missa hann, vonandi verður eftir maður hans jafn otull og fús til að starfa fyrir öll aðildarfélög SUS og hann hefur verið. [Skrifar sá sem ekki veit - neitt um málefni framkvæmdastjóra SUS]
Ég er farinn heim ánægður með að ég hef ekki eytt einum einasta eyri í dag, svona bara í tilefni dagsins :)
Í dag er kátt í Austurvegi, Pakistanar prúðbúnir enda er það þeirra þjóðhátíðardagur eða Sjálfstæðisdagur svo maður þýði enska heitið og vitna ég að því leiti til Utanríkisráðuneytisins en Stóribróðir í vesturheimi segir Lýðveldisdaginn vera 23. mars.
En Pakistan það minnir mig náttúrulega á Íslenskt Dagsverk sem unnið var fyrir illa setta á Indlandi, svo nokkru seinna þá kom í ljós að þessi spenna sem hefur verið þarna á milli Hindúa og Múslima hefði leitt af sér Kjarnorkuvopnavæðingu, þá hló einn sem ekki tók þátt í þessu góðverki / dagsverki og sagði þegar dró úr hlátrasköllunum: "....hehehe hehe he ha haha ha þið voruð að styrkja Kjarnorkuveldi hahahahaha...." Einar Hafberg sem þá hafði einhverskonar umsjón með þessu dagsverki sagði ekkert við svona gagnrýni.
En það er spurning hvernig frú Benazir Bhutto hafi það núna. Henni var steypt rétt eins og Ali Bhutto föður hennar 1977, hann var svo aflífaður tvemur árum seinna. Benazir var steypt og síðar dæmd fyrir spillingu 1999 ef ég man rétt. Ég hef ekki heyrt um að hún hafi verið aflífuð svo að e.t.v. eru Pakistanar á réttri leið hvað varðar mannréttindamál.
13.8.02
Stefán Friðrik Stefánsson skrifar hér um Bessastaðabóndann og búskap hans á Bessastöðum síðustu 6 ár, helvíti skemmtileg pæling, og þó að viðfangsefnið gæfi e.t.v. tilefni til þá er það ekki eins væmið og ræman sem ég sá í gærkvöldi, en þar sá ég Vin Dalvíkur Ólaf Rúnar Ólafsson. Þetta var framtíðar myndin um morðlausa tilveru í höfuðborg Bandaríkjanna, þ.e . minnihluta álit eða minnilhluta skýrsla.
En svo var þða snótin sem kvaddi vinkonu sína með orðunum "stoppaðu við", sem ég held að hafi verið óviljandi bland af orðasambandinu "líttu við" og orðsins stoppaðu í sambandi við sem væri e.t.v. á þessa leið: Stoppaðu einhverntíman ef þú átt leið hjá heimili mínu en þó væri "líttu inn þegar þú átt leið hjá" etv. best þó að stoppaðu inn væri fáránlegt. Nú veit ég ekki því ég rétt aðeins heyrði þetta sem mér þótti nokkuð forvitnliegt orðasamband. En er ekki upplagt að vísa í gestabókina ef einhvern grunar að hér hafi eitthvað annað átt sér stað og er öllum frjálst að koma með tillögur þess efnis hér
12.8.02
Máni þykist vita allt um það hvernig maður á að vera karlamaður, það er ágætt að einhver viti það. En núna er Máni orðinn atvinnumaður í litbolta, fluttur til Noregs, þar sem hann eins og alvöru atvinnuíþróttamenn við Norðuratlantshafið, hefur fengið vinnu vegna íþróttahæfileika sinna, hann slátrar eldislaxi, sér um flutning laxanna á þurt land til slátrunar.
Mundi sjálfur skrifar um "uppgjörið" sem fór fram á föstudaginn, ég vona að hann nái sér drengurinn.
Já meðan ég man, ef einhver Heimdellingur les þetta, þá til hamingju með Magnús formann. Í ljósi þess að Heimdellingar komu sér saman um formann í fjölmennri kosningu, eitthvað segir mér að spennan verði ekki jafnmikil á Aðalfundi Varðar n.k. laugardag
Nú er hann sjálfur farinn að fjalla um sína hugmynd, hugmynd Guðmundar Freys um stjórnmálasögusafn, og það sem er betra þá er hann líka að fjalla um umfjöllun sem hugmyndin hefur hlotið, jæja Gummi til hamingju, ég ætla að segja eitt eða tvennt um þessa hugmynd, ég tel það á eftir, En að hafa eitt safn um Stjórnmála sögu er ekki það sem okkur vantar núna, stjórnmála sögunni eru gerð skil í Þjómenningarhúsinu, á Hrafnseyri og fyrir framsóknarmenn á Djúpavogi þó svo að allir þeir sem búa við Berufjörð séu ekki framsóknarmenn. Ef Gummi er jafn forfallinn framsóknarmaður og hann vill látast vera þá ætti hann að sjálfsögðu að ræða þessa hugmynd við Jóhannes Geir hjá Kaldbaki eða Benedikt hjá KEA svf. því Benedikt sagði að KEA vildi styrkja menningarstarfsemi, þó það væri aðallega á félagssvæðinu, þá þekkjast þau dæmi að samvinnumenn hafi skipt um skoðun til þess að hygla félögum sínum. Annars veit ég ekki hver vill minnast samvinnuhreyfingarinnar?
9.8.02
Það er og ... ég veit ekki hvað er í gangi, það er búið að spyrja mig í tvígang hvort Einar Hafberg sé í Heimdalli og að því hvað hann muni kjósa og hvort hann kjósi. Ég hélt að allir vissu að sumir ætluðu sér að ganga úr Sjálfstæðisflokknum ef þeir flyttu suður svo þeir yrðu ekki félagar í Heimdalli, reyndar man ég ekki hvort Einar hafi einhvern tíman sagt eitthvað svoleiðis. Ég held samt að menn séu ansi hætt komnir og nálægt því að tapa sér ef menn halda að Einar sé í Heimdalli. En svona er þetta nú. Auðvitað er Einar Hafberg bara að bjarga mannslífum á Akureyri en ekki hvað
Molinn
Árið 1942 er einn Íslendingur sagður hafa dáið sökum fávitaháttar.
8.8.02
Draumar og vonir
Áður en við gleymum okkur í draumförum um iðnað í Eyjafirði þarf að tryggja að af framkvæmdum verði við Reyðarfjörð. Sú ákvörðun Alcoa að greiða Landsvirkjun fyrir framkvæmdir sem hefjast í sumar eykur vonir manna um að eitthvað verði af framkvæmdum.
Á Austurlandi hefur atvinnuástand fremur verið fábreytt en ótryggt. Þótt fólksfækkun hafi verið nokkur virðist hún fara minnkandi. Áhugi sá sem stjórnvöld hafa sýnt iðnaðaruppbyggingu á Austfjörðum sýnir að stjórnvöld, þó þau séu staðsett í Reykjavík, viti af lífi landsmanna annarstaðar en í næsta nágrenni Stjórnarráðsins.
Austfirðingar rétt eins og aðrir landsmenn geta ekki beðið eftir að aðrir bjargi þeim, enda hefur það ekki verið þeirra háttur. Á Austurlandi er mikil gróska í ferðaþjónustu, sem er hvort tveggja tengd flugvellinum á Egilsstöðum og áætlunarfluginu til Þýskalands og væntanlegri nýrri Norrænu sem siglir til Seyðisfjarðar. Austfirðingar eru einnig áhugasamir og iðnir við að styrkja stoðir fiskvinnslunnar og sjávarútvegsins í heild með eldi lax og þorsks. Einnig má víða sjá vöxtinn sem kominn er í Héraðsskóga og ber hann skógarbændum gott vitni.
Það er og tímabært fyrir alla aðra að huga að sóknarfærum á sviði iðnaðar. Og þá dugar ekki að láta sig dreyma.
En Ásgeir kallinn Höskuldsson, strandgæslumaður, Glerárbrimari og jarðsprengjuleitarséní segir hlutina hreint og beint og minna má nú sjá, það er naumast að það er bjart yfir honum.
7.8.02
Hvað veist þú um þá sem eru hér? - eylítið um okkur ...
6.8.02
Var að renna í gegnum póstinn sem barst meðan ég var í Færeyjum, skammarlegt að fá svona pening til baka í ofgoldinn skatt , ég hefði fremur viljað vinna mér inn meira svo ég hafi þurft að borga skatt, þetta er alveg hreint út í hött, næstum engar tekjur, usssum suss. Maður verður að koma þessu út í þjóðfélagið, því peningar eru afl þeirra hluta sem ....
2.8.02
Fagna nú lokum frálíkrar ferðar!!!!
Færeyjar lengi lifi, húrra húrra húrra!!!
úrslitamarkið í Lögmannssteypafinalinum var áhorfsins vert, þá sekúnduna.
ætla að hvíla mig næsta korterið, eftir "langa" ferð
24.7.02
Það styttist í ferðina miklu, mæting á hafnarbakkann í fyrramálið. en ég er enn að jafna mig eftir þjóðhátíðardag Egyptalands sem var haldinn í gær.
Ég vil þakka þeim sen eiga þakkir skildar fyrir þeirra framlag
22.7.02
Ísland mun rísa stolt upp úr öldunum 1. ágúst
Þá er það ákveðið Ólafsvakan verður haldin hátíðleg þetta árið :) en Tórbjörn og Tjóðveldismenn hafa ekki svarað Fólkaflokkinum.
Gert er ráð fyrir að farið sé sjóleiðis og á föstudaginn verður Jógvan sjálfur heimsóttur í Skopun, svo má vænta þess að stigið verði á dansgólf á sunnudags eða mánudags kvöldið. heimferð er og ráðgerð miðvikudaginn 31. júlí. Á þessu kosningaferðalagi verður í það minnsta farið um tvö valdæmi. Sennilegt er að farið verði í víðfema ferð í Sandeynni, þá er ekki ólíklegt að farið verði suður í Dal til Vítusar. En í Skopun varð heldur betur óhapp nú um helgina en menn vonast til að slíkt komi ekki fyrir aftur.
Molinn
Árið 1902 gerðu 20 þilskip út frá Akureyri og komu þau með 241.000 fiska að landi
21.7.02
Akureyri skartar sínu fagra í dag, rétt eins og Skagafjörður í gær
20.7.02
Það var kátt í búðum Skóta í álfheimum að Hömrum, og kaffið var heitt og gott. Hljómar hljómuðu vel við Pollinn í nótt, Gunnar Birgisson var í góðu formi. En Kaffi Akureyri slökkti á skemmtaranum þremur mínútum fyrir fjögur, samt var margt um manninn þar inni. Óli og Eva hrósuðu gæsamorðingjanum, og þökkuðu fyrir sig, þó enn séu 30 dagar í að gæsa skitteríið geti hafist. Hinsvegar kom það í ljós að sumir halda að dauðans alvara sé grín. Hvur veit nema að maður skelli sér í Skagafjörðinn í dag heilsi svo upp á Færeyinga í kvöld og hiti gamla félaga í nótt.
Höfðinginn er ekki í því skapi að gæjast á fornar slóðir þó þar sé kátt þessa dagana, en súpa er matur í dag.
19.7.02
Nú er "búið" að uppfæra tæknina en samt gengur það ekki alveg að prennta því segi ég eins og einhver frjáls sagði einhverju sinni:
Til tölvunnar, kerfisins og starfsfólksins
Tölvukennslu tímar allir líða
Með tækni þrusu góðri
Æsku okkar besta fóðri
Ó hve vel prentast þessi síða.
Hér er tölvukerfið hraðvirkt
og hundrað milljón póstar
hugbúnaðurinn ekki hóstar
þó hér sé svæsið klám birt.
Gagnaflutningar góðir
og geymir mikið dót
netsamband nú er stöðugt
netstjóri, kæri bróðir,
lítið held ég leikjamót
ljúfur, það er öruggt.
Fr. J. Áls
- ég vona að þetta hafi verið skrifað í háði annars er þetta útópía!!!!
svo er kjarninn enn krufinn og Morgunblaðið-málgagnið-upplýsingaveitan-sönnun tilvistar okkar-mbl.is greindi frá því rétt í þessu að G. John Pizzey, aðstoðarforstjóri Alcoa Incværi bjartsýnn á að skrifað yrði undir lokasamninga í janúar nk. - Svei mér þá ég held ég geti varla sungið lengur með Mikka Vestfirðingi Jagggggggggggger í ljóðinu um það þegar hann fær ekkert !
blíðar hilsur
18.7.02
Það var og, og einmitt það
Innlent | Morgunblaðið | 18.7.2002 | 5:55
Rafskaut flutt inn til landsins
Bandaríska álfyrirtækið Alcoa, sem hefur áhuga á að reisa álver í Reyðarfirði, hefur ákveðið að rafskautaverksmiðja verði ekki byggð við hlið álversins heldur sé ætlunin að flytja inn rafskautin, sem notuð eru við framleiðslu áls, sjóleiðina frá Bandaríkjunum. Þá er ætlunin að flytja úr landi kerbrot, sem falla til við hreinsun kera í álverum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali í blaðinu í dag við Jake Siewert, upplýsingafulltrúa Alcoa, sem staddur er hér á landi ásamt fleiri fulltrúum Alcoa vegna undirritunar viljayfirlýsingar við stjórnvöld um áframhaldandi viðræður um byggingu álversins. Sum sé ekki verður mengun af þessari starfsemi á Íslandi og fyrirtækið mun reyna að ná fram áhrifum stærðar sinnar eins og kemur fram hér fyrir aftan. Í umhverfissmatsskýrslu Reyðaráls, undirbúningsfélags í eigu Norsk Hydro og Hæfis, var gert ráð fyrir allt að 223 þúsund tonna rafskautaverksmiðju við álverið í Reyðarfirði í tveimur áföngum og sömuleiðis var ætlunin að urða kerbrotin á iðnaðarlóðinni. Að sögn Siewerts ætlar Alcoa að flytja kerbrotin til annarrar verksmiðju í eigu fyrirtækisins sem sérhæfir sig í endurvinnslu slíkra efna, sem m.a. eru svo notuð í stáliðnaði og til vegagerðar.
Jake Siewert segir að með þessum aðgerðum ætli Alcoa sér að draga sem mest úr mengun frá álverinu og öðrum umhverfisáhrifum. Einnig sparist með þessu milljarðar króna í stofnkostnaði álversins. Þess má geta að rafskautaverksmiðja var í úrskurði Skipulagsstofnunar nefnd meðal helstu mengunarvalda. Og hafið þið það V(erdens)G(ang) "vinir".
Eru til viðræðu um þátttöku í uppbyggingu verndarsvæðis
Þá segir Siewert að Alcoa sé reiðubúið til viðræðna um þátttöku í uppbyggingu verndarsvæðis norðan Vatnajökuls en þar eigi íslensk stjórnvöld síðasta orðið. Hann bendir einnig á að ekki sé búið að ákveða endanlega framleiðslugetu álversins í Reyðarfirði. Til þessa hefur einkum verið talað um 320 þúsund tonna álver en upplýsingafulltrúi Alcoa segir að stærðin sé nær því að vera í kringum 300 þúsund tonn.
Það liggur við að maður fái úr honum við svona góðar fréttir
16.7.02
Dansinn dunar á Héraði og víðar .:[ undirheimar.net ]:.
Flóvin fyrsti Færeyingurinn sem nálgast aðlþjólegameistaratign í skáklist
Fyrirhelgi komst Flóvin af stað á leið sinni að alþjóðameistara tign í skák þetta gerðist í Þýskalandi nú fyrir nýliðna helgi og þýkir mér Málgagnið ekki standa sig nægilega vel í umfjöllun um Flóvin en fyrir þá sem eiga að vita það þá er Flóvin að hálfu Íslendingur.
En Færeyska frétta þjónustan segir
Eitt bragd hevur Flóvin framt, og vónandi kann úrslit hansara skumpa aðrar føroyingar sama veg, soleiðis at vit innan fá ár eiga ein ella fleiri altjóða meistarar. Nú vita vit at tað ber til.
blíðar hilsur
Það var alveg þrusu gott erindi um Samgöngur í Færeyjum núna á Rás 1, ég átti bara ekki til orð í eigu minni
:)
15.7.02
En ég ætti kanski að gera eitthvað í líkingu við að strengja þess heit að ég skrifi hérna eitthvað í það minnsta vikulega, ef líf mitt verður svo spennandi... :)
Konur komust í fréttir
Þó að nýr mánuður hafi gengið í garð þá hefur fátt gerst. Fregnir herma að stormasamt sé á Færeyska stjórnarheimilinu og þarf það ekki að koma kunnugum á óvart. ég vona að menn leggji niður vopnin svona rétt yfir Ólafsvökuna svo Færeyingar allir nær og fjær geti skemmt sér sem þeir mest nú mega. Annars varð kunninginn nokkuð rúsaður á föstudaginn og talsvert fullusjúkur á laugardaginn sem leið enda hafði hann ekki litið í glas í hart nær mánuð svo upptekinn hefur náunginn verið af grámyglu hversdagsins. Eins hefur bókasafnið verið setið nokkuð stíft enda hefur tölvusamband ekki verið með besta móti, - en hvenær er það svo sem á þann veg???
Kona var ráðin bæjarstjóri á Blönduósi og kona vann mál gegn Valgerði H. sjálfskipaðri jafnréttis#%#"/(&/)# þannig að konur komust í frétrtirnar.
En Grímseyingar voru glaðir og kátir og reglulega sáttir við lífið og tilveruna.
2.7.02
Já það er kominn nýr mánuður og allt, gaman gaman:)
27.6.02
Þið hafið eflaust heyrt þessa frétt:
Samtök listamanna og kvikmyndagerðar-fólks leitast við að opna augu stjórn-valda fyrir mikilvægi þess að framleiða meira af leiknu sjónvarpsefni hér á landi.
Í nýrri skýrslu sem Aflvaki hefur unnið eru færð rök fyrir því að stofna ætti sjóð sem úthlutaði styrkjum í þessu skyni. Í skýrslu Aflavaka eru skýrðar hugmyndir um stofnun sjónvarpsmynda-sjóðs með þátttöku allra sjónvarpsstöðvanna og fagfélaga listamanna.
Bent er á að fáist 300 m.kr. árlegt framlag í sjóðinn frá stjórnvöldum geti það skilað um 113 m.kr. frá erlendum samframleiðendum. Störfum í greininni gæti fjölgað um 100 við þetta
-
Ég get tæpast beðið eftir að þetta verði að veruleika sápuópera um landnámsmenn, byggð á Íslendingasögunum,
Sjónvarpsmynda flokkur um Sturlungaöldina,
Þáttaröð um galdrafárið.
Önnur um vesturferðirnar og um örlög vesturfaranna, með tilliti hvaðan af landinu þeir fóru
Leikið efni um "átök" í sjálfstæðisbaráttunni
sápuópera um lífið á Íslandi á 20. öldinni þar sem niðjar bóndans takast á við niðja sjómannsins en þeir voru bræður, en systurnar fóru í verslun svo er hluti niðjanna verkafólk og annar hluti er atvinnurekendur einhverjir hafa farið í skóla, fylgst er með ólíkri baráttu þeirra við kerfið, verðbólguna,hvernig fólkið tókst á við skömmtunartímabilið, hvaða áhrif ástandið hafði á fjölskyldulífið, eða nýríkidæmið eftir stríð, hvernig fólkið stóð saman í landhelgismálinu og hvað það karpaði vegna Keflavíkurgangna, samhuginn í kringum Vestmanneyjagosið og Snjóflóðin, viðlagatryggingarnar, baráttuna við Bakkus og stóra Fíkniefnamálið, svona n.k. Forrest Gump mynd um Íslandsöguna, nema það væru fjölskyldur sem fylgt væri í gegnum heila öld. (Mínar ær og kýr að koma þessu í verk - [gersamlega bilaður?])
Eins væri hægt að slíta það í sundur og hafa þáttaraðirnar tileinkaðar ákveðnum tímabilum, s.s. Stríðsárin, Landhelgin, Handritin, Verðbólgan, Auðurinn, sjálfstæðið, Kreppan o.þ.h.
Verðbréfaveltan gæti þáttur heitið um sögu viðskipta á Íslandi og baráttuna við Samkeppnisstofnun og Fjármálaeftirlitið.
Þáttaröð um lífið inn til fjalla í sveitum landsins byggð á Sjálfstæðufólki eða Höllu og Heiðarbýlið eftir Jón Trausta ég meina við höfum nægilegt magn af Skáldverkum eftir íslenska höfunda til að byggja á.
Svo í stað Indiana Jones væri hægt að fjalla um Jón Jóns sem þvældist um heiminn, eða Villi Jóns sem þvælist um landið og fetar ásamt Rósu í fótspor Ómars Ragnarssonar. Þá væri sagt, hérna fór Ómar og samtöl hans við ýmsa væru leikin , já ég veit nú gékk ég of langt.
Svo væru allar mýturnar um ástsælni sjómanna kjörið efni fyrir sjónvarp
Það væri hægt að gera nóg með þetta og mér finnst þetta frábært framtak hjá hlutaðeigandi listamönnum að spá í svona löguðu.
26.6.02
Að gefnu tilefni um aðstoðarmenn Alþingismanna
Ég sá einhversstaðar spurningu á þá leið "hvað er hæft í því að sett verða upp einhverskonar embætti aðstoðarmanna Alþingismanna"
Þetta verður í kjölfar hinnar svokölluðu kjördæmabreytingar og mun þá eiga við um þingmenn Vesturkjördæmis, frá Akranesi að Siglufirði, Austurkjördæmi, frá Siglufirði að Hornafirði, og Suðurkjördæmis frá Hornafirði að Reykjanesbæ.
Þetta verður þannig að Þingflokkar geta ráðið til starfa aðstoðarmann fyrir hverja tvo þingmenn í þessum kjördæmum.
Þeim er ætlað að auðvelda Þingmönnum að halda tengslum við kjósendum.
Ekki er vani að Þingmaður gegni öðru FULLU starfi en það hefur lengi tíðkast að þingmenn séu í ýmsum nefndum og ráðum, nefndarstörf innan þingsins eru ólaunuð. en t.a.m. seta í stjórn Sinfóníunnar eða Sóttvarnarnefnda er launuð.
Gunnar I Birgisson og Vilhjálmur Egilsson eru undantekningar á þeim vana að Þingmenn gegni ekki öðrum störfum á meðan þeir gegna þingmennsku.
Þingmenn geta tilkynnt að þeir óski fjarvistarleyfa sem þeir gera alloft, flestir en þurfa ekki að kalla inn vara menn, ef Alþingismenn eru fjarverandi lengur en 2 vikur skal kalla inn varamann. Þingmenn sitja oft á skrifstofum sínum meðan þingfundur fer fram og eru í húsinu og heyra því Ögmund mala því sá sem er í ræðustól er sjálfkrafa í innanhúskerfi Alþingis og allir geta heyrt rausið þó þeir séu ekki í Þingsalnum, þá eru Þingmenn að lesa eða að skrifa eða að vinna í Tölvum (vá gæti verið að Þorgerður Katrín væri að lesa þetta ég fæ smá kikk út úr tilhugsuninni :) meira en ef Svanfríður væri að lesa þetta).
Ég tel þetta kerfi sem verið er að koma á fót ekki æðislega sniðugt heldur frekar, óheppilegt fyrir lýðræði.
Nú verður einhver ÞÆÐ kosinn þingmaður í Vestur Austur eða Suður- kjördæmi hann og XYZ eru saman í flokki og þingmenn samakjördæmis nú þeir ráða ABC sem aðstoðarþingmann sinn og ABC fer með þeim í hverja einustu ferð þeirra út í kjördæmið og er í stöðugu sambandi við lykilmenn í sínum flokki í þessu kjördæmi svo einhverjum árum eða kjörtímabilum seinna ætlar annar hvor ÞÆÐ eða XYZ að hætta á þingi. [það er vitað að flokkurinn á nokkuð örugglega tvö þingsæti í þessu kjördæmi en varla nokkurn möguleika á þriðja þingsætinu, NB í V-, A- og S-kjördæmi verða 9 kjördæmakjörnir menn og einn uppbótaþingmaður,] Að svo búnu vill bæjarstjórinn ÞÆÖ og kennarinn KLM, sem eru frá sitthvorum staðnum í kjördæminu, þekktir í sínu samfélagi en ókunnugir utan þess, bjóðasig fram í prófkjöri, þar sem baráttan verður um annað tveggja þingsætaflokksins í kjördæminu, en ABC hefur líka áhuga á því að verða þingmaður eftir að hafa verið aðstoðar Alþingismaður (AA?) í \"öll þessi ár\" Hann er ekki bara þekktur á þessum tveimur stöðum heldur í öllu kjördæminu og hefur aflað sér tengsla sem víðast innan kjördæmisins. Ég myndi halda að aðstoðarmaðurinn væri sigurstarnlegastur í prófkjöri um "lausaþingsætið - sæti nr. 2" því hjá stuðningsmönnum beggja mótframbjóðenda hans væri ABC sennilegast kostur nr. 2 og auk þess væri hann kostur nr. 1 í lausa þingsætið hjá þeim sem þekktu til hvorugs KLM eða ÞÆÖ og væri líklegur til að njóta stuðnings þess þingmanns sem hætti og fengi sennilega atkvæði í 1. sæti frá þeim sem væru dyggir stuðningsmennflokksins en ekki svo allskostar sáttir við þann þingmann sem eftir sæti við Austurvöll.
Dæmisagan á enga stoð í raunveruleikanum, en hver veit hvað verður???
25.6.02
Og þó, minni enn og aftur á frjóar umræður í skjóli fyrirspurna til Baggalúts.issss
Þetta frumenfi á víst að vera gull, en ég ku vera farinn að láta það mikið á sjá að gullið í mér er farið að tærast helst til mikið ;(
21.6.02
Grín og glens en þó meira kanski út í rugl og vitleysu
Hahaha bara rétt handan við hornið
Þvílíki brandarinn og þetta líka endalausa spaugið
Svei mér þá þetta er örugglega eitthvað það mest spennandi sem gengur og gerist á þessu neti, eða í þessum netheimum :) gaman gaman.
Í alvöru innslegið þá væri ég til í það að mér dytti eitthvað sniðugt eða gáfulegt í hug svo ég gæti slengt því sem snöggvast fram. En ef mér dettur eitthvað í hug seinna í dag, þá vildi ég að ég myndi muna það þegar fram líða stundir.
svakar vikuskiptiskveðjur
20.6.02
Vá aftur vá, svo viðburðasnauðandag hef ég sjaldan lifað ætli morgun dagurinn verði jafn spennandi?
19.6.02
Konur, mæður, meyjur,
mætar fósturlandsins freyjur
fagrar stelpur, stúlkur
stoltar frúr, gleðja okkur
Til hamingju með daginn
Vá - þessi helgi varð aðeins lengri en maður reiknaði með.
Gleðilega Þjóðhátíðar rest Íslendingar, nú telja Færeyingar niður uns Ólafsvaka hefst með látum.
Látum hamingju óskir með daginn nægja í bili.
13.6.02
Hún er farin að skína aftur, svona á hún að vera sólin - sæt og fín
Sólin fór í frí, sýnir sig sennilega bráðlega aftur í hjörtum hvers okkar og skín þá bjartar en nokkru sinni fyrr.
12.6.02
Æi jæja
Dansleikurinn heldur áfram, og Falun gong fá að hertaka landið með liðamótaklækjum sínum. Ég veit ekki hvort ég hafi séð út á Svalbarðseyri þegar ég gekk til vinnu í morgun en við tölvuna sé ég í gegnum fjöll og fyrnindi. Ég hef ekki heyrt í Jógvani nýlega en spjalla sennilega við hann um helgina, annars líður mér bara vel Paul og Heather búin að gifta sig, loksins loksins. Hvað líður svigrúminu á Bessastöðum það er nú komin tími á þau þar.
Segjum það
11.6.02
Er þessi skáld? eða er þessi ekki skáld? Hvenær er maður skáld og hvenar er maður ekki skáld? Hvenar yrkir maður vísu og hvenar semur maður ljóð? Hvað er limra og hvað er staka? Hver er munurinn á kveðskap og leirburði? Ætli þessi geti sleikt á sér nefbroddinn með tungunni?
Hvað sem hverjum finnst þá kennir ýmsra grasa þarna og ýmislegt er sniðugt og sumt er í nágrenni við það að vera skemmtilegt.
Annar verðum við að passa okkur á svona líkamsræktarfólki - hvort sem það er hreysti eða falun gong, ríkisstjórnin verndar rétt antisportista með þessum aðgerðum sínum og handsamar þá sem vilja hreyfa sig - vá!!
Verður skólaskildu leikfimi ekki afnumin hvað og hverju?
Og svo mega kommúnistar vaða hérna uppi einsog þeir séu siðaðir menn - og er allt í lagi með þessa menn sembjóða svona **** til landsins?
Hvorki Li Peng né Jang Zemin verður boðið til Færeyja nema í fylgd falun gong fái ég einhverju um það ráðið.
Svakar kveðjur
10.6.02
Helgin liðin, loksins loksins og ný vinnuvika streymir áfram, yndislengt. Annars þá unnu hægri menn á í Frakklandi en vinstri menn gætu samt unnið skv. frétt í RÚV í morgun, það er gott að íhaldssöm sjónarmið njóti sín.
Er ég svakur ?
7.6.02
Þá er þessum vinnudegi lokið, ætli ég hrýni ekki eylítið seinna ef ég skildi hnjóta um eitthvað athyglisvert. Sem væri hrýnsins virði.
Sá nokkra kunningja sem ég bið að heils og óska ég þeim velfarnaðar í þessari blokk. Ég reyni að vernda þá fyrir ágangi óðra gesta enn um sinn en ætli ég bendi ekki betur á þá seinna.
blíðar hilsur
Alltaf í bölvuðu veseni með formsatriðin en við skulum ekki láta þau vefjast fyrir okkur.
Kveðja svaki
Vinarligu lesendur
Eins og oft áður kom dagur að kveldi án þess að sólin hafi haft hugmynd um það, eins kom nýr dagur en sólin hélt sig við fyrri áætlun. Fjörðurinn var spegilsléttur, mikið hefði maður gaman að fara út ef gæftir væru góðar. Annars er auðlindin komin í sumarfrí því er nú ver og miður. Það verður eftir sjá af aflafréttum í sumar, þá þarfmaður að stóla á Málgagnið sem hefur einnig dregið úr þjónustu við þessa atvinnu grein. Það er búið að steypa Verinu inn í VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF og www.interseafood.com en það mæta rit fer sennilega líka í sumarfrí.
Svo maður haldi áfram með sjávarútvegsma´lin, hvernig veit Hr. Árni Matt að þorskstofninn hafi náð lágmarki? Stofnmatið byggir að hluta á svo kölluðu togararalli sem framkvæmt er einu sinni á ári, á vori, að því loknu er ráðist í mat á stofnstærðinni og svo koma tillögur Hafró um heildarafla svo stofninn minnki ekki enn frekar og því næst kveður Hr. ráðherra upp dóm sinn. Hvernig veit Hr. Árni Matt að stofninn sé á uppleið núna þegar hann er að mæla fyrir um niðurskurði á afla og stofninn er minni en í síðasta stofnmat? Hinsvegar er það rétt að 11000 tonna kvóta samdráttur er skárri en 30000 tonna kvóta samdráttur sem hefði mátt búast við í ljósi þess að stofninn fór minnkandi fyrir ári og minnkar en en bara ekki jafn skarpt. Ég vona sannarlega að Hr. Árni Matt hafi á réttu að standa og það er mikið gleði efni að hann skuli loksins geta ákveðið heildarkvóta sem ekki leiðir til minni útflutningstekna.
Annars var ég að lesa Deigluna og þá fór ég að velta því fyrir mér hvort einhverntíman yrði haldin hátíðleg athöfn þar sem Kolbrún Halldórsdóttir og Ögmundur eða Jón Bjarnason myndu leggja blómsveig á minnisvarða um meydóm óþekktu nektardansmærarinnar.
Blíðar hilsur
6.6.02
Hrýni dagsins - www.mbl.is
mbl.is Forsíða Frétt
Erlent | AP | 6.6.2002 | 15:31
Ný heimastjórn Færeyinga kynnt
Anfinn Kallsberg, lögmaður Færeyja, kynnti í dag nýja heimastjórn fjögurra flokka. [lokzinz lokzinz] Í málefnasamningi nýju heimastjórnarinnar er ekki minnst á sjálfstæði frá Dönum en aðeins sagt að Færeyingar vilji taka yfir nokkrar stofnanir og skrifstofur sem Danir stjórna nú. [Kemzt þótt hægt fari]
12 ráðherrar sitja í heimastjórninni frá fjórum flokkum sem skipuð er flokkunum þremur sem mynduðu síðustu heimastjórn auk Miðflokksins. [Hér vantar ýtarlegri lista yfri það hverjir gegna hvaða ráðuneytum] Stjórnin var mynduð fyrir nokkru en ágreiningur var milli Folkaflokks [ Fólkaflokkurin er Þjóðarflokkurinn á íslensku ] Kallsbergs [Hér vantar fornafn Anfinns Anfinn Kallsberg heitir kappinn] og Þjóðveldisflokks Högna Hoydals hvor þeirra ætti að verða lögmaður. Sjálfstýriflokkurinn [Flokkurinn heitir Sjálvstýrisflokkurin eða Sjálfsstjórnarflokkurinn á íslensku] á einnig aðild að heimastjórninni. Í kosningum sem fóru fram til færeyska Lögþingsins um mánaðamótin fengu þeir flokkar sem vilja sjálfstæði og hinir sem eru því andvígir, jafn marga þingmenn.[Réttara væri að segja að Landsstjórnin og stjórnar andstaðan fengu jafnmarga þingmenn eða 16 þar sem flokkarnir sem stóðu að landsstjórninni voru mis áfjáðir í fullt sjálfstæði strax]
Í málefnasamningi nýju heimastjórnarinnar er gert ráð fyrir að Færeyingar stefni að því að taka yfir málefni dómstóla, lögreglu, kirkjum [trúar], flugvalla[flugvallar það er bara einn flugvöllur í Færeyjum], veðurstofu og vita ásamt fleiru.
AP fréttastofan hefur eftir Inga Samuelssyni ritstjóra Dimmalætting, að nýja heimastjórnin taki mun mildari afstöðu til sambandsins við Dani en sú fyrri. [En hvað hefur Málgagnið eftir Færeyjingum? Þeir eru nú með fréttaritara þarna og svo ætti í það minnsta einn blaðamaður Morgunblaðsins að geta lesið Færeysku]
Til baka[Það verður ekki aftur snúið]
Góðu lesendur - blíðar hilsur!
Þá byrjar ballið - þó ekki byggðaballið og ekki heldur sveitaballið, heldur ballið þar sem Færeyjar.is eru í brennideplinum.
Annars hafa Færeyjar.is oft verið sakaðar um óskiljanleg heit. Einkum er þar um að kenna löngum setningum, sundur slitnum orðum sem oftast hafa verið samsett eða samsettum orðum sem ekkert eiga sameiginlegt.
Orsökin er einungis Færeyskt hugarfar. Það sem við þörfnumst nú mest er Færeyskur samgönguráðherra. Annars ætlaði Færeyingur sér aldrei að flytja inn í blokk en eitt í dag verður annað á morgun og þá sennilega líka öðruvísi í gær.
Annars þá eru Færeyingar búnir að fá sér nýjan menntamálaráðherra það er 28 ára ung kona sem er kennaranemi - vekur það einhverjar spurningar, en til hamingju Annalis. Annalis er í Þjóðveldisflokknum. Ég meina Færeyingar eru ekki þekktir fyrir að grínast heldur taka Færeyingar á hlutunum fyrir alvöru, já. Ef hún hættir einhverntíman pólitísku basli þá verður hún sennilega góður kennari, Íslendingar hafa hins vegar 59 ára mann sem var menntaskólakennari í 21 ár og alþingismaður í 11 ár áður en hann varð ráðherra. Sá sem byggir Færeyjar.is man ekki eftir að Annalis hafi látið mikið til sín taka í pólitísku-vafstri Færeyinga. En hún er í stærsta stjórnarflokknum - sem er kanski eins og VG hér með svolítið vinsælan foringja, en að honum slepptum er landauðn og mannval ekkert ef ekki neikvætt. Það er Høgni Hoydal sem er annar tveggja fulltrúa Færeyinga á Danska Þjóðþinginu en ætlaði ekki að sitja fundi þar vegna þess að Færeyingar eru ekki danir í staðin yrði það hann Tórbjørn sem er fyrrverandi ráðherra menntamála Færeyinga sem sæti á danska þinginu sem varamaður. Tórbjørn var rekinn úr Færeysku landsstjórninni fyrir að tala sjómanna mál - hann sagði að Anfinn Kallsberg Lögmaður Færeyja og Þjóðarflokksmaður væri hundur Pouls Nyrups Rassmunsen. Tórbjørn hlustar á Bubba Morthens.
blíðar hilsur
|